Þrif minni húsfélaga

Sameignaþrif BG bjóða öfluga og hagkvæma ræstiþjónustu fyrir litlar sameignir og sameignir minni húsfélaga. Dæmi um sameignir í þessum stærðarflokki eru húsfélög með t.d. 4 til 8 íbúðir.

Algengast er að þrifin fari fram vikulega eða hálfsmánaðarlega allt eftir þörfum hverrar sameignar. Við leggjum áherslu á að þjæónustan sér áreiðanleg, vönduð og sniðin að því sem hentar húsfélaginu best.

Þjónustustigið hjá BG er hátt og mörg húsfélag kjósa að vera í reglulegum viðskiptum við okkur því að það tryggir snyrtilega og vel um gengna sameign. Einnig fá húsfélög í viðskiptum við fyrirtækið hagstæð kjör á sérþjónustu, til að mynda teppahreinsun.

Hafðu samband og fáðu tilboð fyrir ykkar sameign.
Við svörum þér fljótt og vel.
Fyrir minni húsfélög er mikilvægt að þjónustan sé einföld og sveigjanleg. Tíðni og umfang þrifa eru aðlöguð að notkun sameignarinnar og þörfum íbúanna.

Litlar sameignir