Fagleg teppahreinsun í sameignum

Fagleg teppahreinsun í sameignum er mikilvæg þar sem teppin á stigagöngum þurfa að þola mikinn ágang. Sandur, mold, tjara og önnur óhreinindi berast inn með íbúum og valda sliti. Regluleg djúphreinsun lengir líftíma teppisins og er því mikilvægt að hreinsun á teppi sé framkvæmd reglulega.

Sameignaþrif BG hefur mikla reynslu og fullkomin tækjabúnað til að sjá um þessi mál fyrir sameignina þína. Við bjóðum bæði upp á blaut- og þurrhreinsun teppa. Þegar stigagangurinn er teppahreinsaður þá hreinsum við einnig allar mottur sameignar á sama tíma.
Áður en vinna hefst metum við gerð og ástand teppanna og veljum hreinsiaðferð sem hentar efninu. Markmiðið er að losa óhreinindi úr teppunum, bæta útlit þeirra og stytta þurrktímann eins og kostur er. Verkið er skipulagt í samráði við húsfélagið svo röskun fyrir íbúa verði sem minnst.
Teppahreinsun á sameiginlegum gangi í fjölbýlishúsi